

Mér finnst alltaf skemmtilegra að vita eitthvað um fólkið sem ég les bloggið hjá … þannig:
Ég heiti semsagt Erla María ...

Fæddist þann 31.dezember 1989 og þegar ég var lítil fannst mér ekki nógu töff að hafa fæðst klukkan ellefu um morguninn þannig að ég laug að sumum að ég hefði fæðst rétt fyrir miðnætti ! Já ég var kannski ekki þægasta litla barn í heimi 
En mér fannst og finnst enn mjög gaman að eiga afmæli á gamlárs, þegar ég var lítil hélt ég auðvitað að allir væru að skjóta upp flugeldum því að ég átti afmæli, hehe.. en nóg um mig þegar ég var lítil.. 
11 mánaða takk fyrir 
Ég er núna í Verzló á félagsfræðibraut, alþjóðsvið. Útskrifaðist úr Langholtsskóla vorið 2oo5, það er æðislegur skóli og ég get eiginlega ekki sagt annað en að ég sakni hans, það var líka bara svo endalaust gaman í 1o.bekk
En ég er líka að fýla Verzló, þrátt fyrir frekar erfitt nám (og nokkur tilgangslaus fög eins og excel ! ) þá er þetta mjög skemmtilegur skóli. Svo er ég líka í skemmtilegum bekk og svona
Ég á æðislega vini. Erla Rún er elsta og besta vinkona mín, Alli er töffaravinurinn minn, Yrsa Guðrún er frænkuvinkonan mín, Sandra er ljóskuvinkonan mín, Ásdís er kórvinkonan mín, Edda er gelluvinkonan mín, Magga er “manstu þegar við fórum í krokket með litlu ÍA strákunum á Akureyri”-vinkonan mín, Árni er elsti vinurinn minn, Rebekka er krúttilegasta vinkonan mín, Ausa er vinkonan sem ég krota á í tímum, Anna er "tilvonandi ungfrú Ísland" vinkonan mín
og Jói , hann verður alltaf besti vinur minn
… og svona mætti lengi telja
Fjölskyldan mín samanstendur meira og minna af eintómum strákum. Ég á einn pabba og eina mömmu. Og svo á ég þrjá bræður, þeir eru allir æði. Hrafnkell, Óli & Pétur.
Ég hef unnið í nokkrum vinnum í gegnum tíðina, unglingavinnan, bónus (neitakk), the bagel house, europris (góðir tímar
)..
Núna er ég að vinna í Snælandvideo, ágætisvinna svosem, og svo sumarið 2oo6 var ég að vinna hjá Hinu Húsinu, í svokallaðri Jafningjafræðslu og er enn, vá ,skemmtilegasta vinna í heiminum. Kynntist yndislegum krökkum þar og þetta er ekkert smá skemmtileg vinna.. 



nemó 2oo7
en já.. meira um mig ?
ég :
- er stelpa
- elska allt sem er blátt
- fæ aldrei leið á bláu
- á æðislega vini
- safna sminti
haha, ekki spyrja
- var einu sinni í fjórum ráðum, ungmennaráði, reykjavíkurráði, unglingaráði og nemendaráði! En ekki lengur, en vá þetta var svo gaman
- var formaður nemendaráðs í 1o.bekk
- hef mikinn áhuga á félagslífi !
- er í 4.bekkjarráði Verzló
- er í tveimur kórum; Gradualekór Langholtsskirkju og Graduale Nobili
- hef farið til Eistlands, Finnlands (tvisvar meira að segja), Danmerkur, Svíþjóðar, Portúgals & Spánar. Og svo hef ég séð Rússland 
- elska náttbuxur
- er heilir 176 sentimetrar
- er með gat í naflanum
- elska Eistagellurnar mínar
- á allt friends-safnið, nema fjóra þætti í fyrstu seríu !!
-elska kórgellurnar mínar
- á bara eina medalíu sem ég get verið stolt af einhverju ráði
hehe.. Skrekkur 2oo3
- er Ungfrú Gradualekór Langholtskirkju
ég og tóbý, ýkt sæta kisan hennar söndru
♥ takk fyrir mig ♥ = ]
*