nóg... í bili ;)
Myndir 2oo6
Dóminíska Lýðveldið*
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 1438 dögum
Belgía *
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 1594 dögum
13.2.2008 05:14:37 / erlamaria

Gullkorn * -gamalt-

Hérna koma ýmsi GULLKORN sem nokkrir vel valdnir einstaklingar hafa látið út úr sér...

-Reyndar er svolítið mikið af þessu einkahúmor, en það skaðar svosem engann ;)?-

Þetta er nú flest allt frekar gamalt, er ekki nógu dugleg að bæta við, en það er alltaf gaman að skoða eitthvað gamalt, er það ekki ?

Gullkorn 2oo6 !

* Ég, Erla Rún og Ausa vorum upp í kirkju einn þriðjudaginn. Ég og Erla Rún vorum að fara í tónfræði en Ausa sat og lærði heima, duglega stelpan. En þannig eru málin með vexti að við vorum í íslenskubók sem bar hið skemmtilega nafn Spegill. Ausa kemur til okkar og spyr Eru Rún:

Ausa:,,Ertu með Spegil?"

Erla Rún fer að róta í töskunni sinni og dregur upp púðurdollu með spegli í og byrjar eitthvað að afsaka sig hvað hann er allur útataður og ég man ekki hvað og hvað.. En ég og Ausa hlæjum ;)

En þetta er ef til vill svona have to be there moment. En þetta er nú án efa skemmtilegasti tónfræðitími sem ég og Erla höfum farið í !

* Í skólanum sat ég á tímabili alveg við hurðina. Og eitt sinn sagði Auður:

Ausa:,,Ef að þessi stofa héti Himnaríki værir þú lykla-Pétur"

( já en því miðu heitir stofan okkar bara stofa 11 ;) )

* Í jarðfræðitíma var Ragnhildur kennaraskutla að tala um Alfred Wegner og hvernig hann fórst þegar hann var að rannsaka Grænlandsjökul. Og þá segir Viðar:

Viddi:,,Bíddu hvað varð eiginlega um hann?"

Snædís:,,Hvern ? Geirfuglinn?

( Og ekki einu sinni hún veit afhverju hún sagði þetta !)

 

GULLKORN 2oo4-2oo5

-Jæja, hérna er að finna nýju gullkornin, gömlu eru svo bara hérna rétt fyrir neðan ! -

*

Yrsa Guðrún, ég og Pétur Jökull litli bróðir hennar vorum eitthvað að tala saman og Pétur Jökull sagði eitthvað sem að var vitlaust og þá leiðrétti Yrsa hann og sagði svo:

,,Vá ég er svo BRAVE"

(en ætlaði auðvitað að segja ,,vá ég er svo bright" ;) Því auðvitað var nú gáfuð en ekki hugrökk að vita eitthvað sem að litli bróðir hennar vissi ekki en hún vissi ! ;) hehehehe..)

*

Við vorum í þjóðfélaxfræði og Þórunn & Sandra voru að tala um fóstureyðingar. Þórunn er á móti þeim en Sandra finnst það bara hið fínasta mál. Og meðal annars sem að kom út úr henni var þetta:

Sandra: Þetta er ekki neitt! Þetta er bara baun... sem að er ekki einu sinni með auga !

(Var semsagt að tala um fóstrið ;) já það má svosem deila um þetta ;))

*

Hjalti að tala um kímnigáfu sína:

Hjalti: ÉG þoli ekki að alltaf þegar ég er að fara að segja eitthvað fyndið þá fer ég bara að gráta!

(Já maður spyr sig Hjalti minn!)

*

Ég var eitthvað að spurja Ástu hvað það væri eiginlega langt síðan að hefði hitt hana þegar hún svaraði:

Ásta: það eru svona 3 hárlitir síðan ég sá þig síðast

(haha..! Já hún Ásta er soldið fyrir það að lita á sér hárið;)

*

Ég og Aron vorum að tala um asnalegt enskupróf með orðum sem maður á aldrei eftir að þurfa að nota einhverntíma aftur:

Aron: Já hehe sama her, get alveg bjargað mer í jess og nóinu en svo þegar marr a að fara þýða orð einsog alþingisráð herra og appelsínugulur þríhintur segull þá er marr farinn i soldið drasl sko

(appelsínugulur þríhyrndur segull já? hehehe)

*

Jói að tala um jólagjöfina sem hann ætlar að gefa mér:

Jói: Ég skal segja þér hvað það er EKKI!

(hehehe.. ok, nota þá bara útilokunaraðferðina Jói minn )

*

Ég, Hlynur & Hrafnkell vorum í sundi, nýkomin úr rennibrautinni þegar Hlynur segir:

Hlynur:,,Æhj, ég fékk vatn bakvið augun!"

(Ooog þess má geta að hann er 29 ára gamall maðurinn ;), þetta meikar samt alveg sens ;))

*

 

 


2oo3-2oo4 GULLKORN =)

Jói sagði við mig á msn einu sinni:

Ég er ekki kettlingur sem hleypur eftir snæri nema þú sért snæri og ég sé kettlingur og hleyp á eftir þér...

(Akkúrat ;)


 

Svo var það Ausa sem sagði við okkur Erlu Rún á msn þegar hún var að "kvarta" undan mynd sem birtist af henni í mogganum:

Ég er eins og spastískur bavíani að spila í lottó (og bara svona svo að þið vitið þá heitir bavíaninn Pingo!)


Linda og Magga þegar við vorum að horfa á "Don´t say a word":

Linda: Stelpur, pæliði í því að deyja lifandi! Magga:Bíddu deyja ekki allir lifandi? (Duh?!)

Kjartan í stærðfræðitíma:

Eitt sem ég fatta ekki, 4 deilt með 4 er einn en ef það koma 4 kallar og taka 4 kalla í burtu eru samt 4 kallar eftir.

(Góð pæling Kjartan, góð pæling)

 


 

Ég í dönskutíma þegar við vorum að fá nýja vinnubók(framhald af gömlu):

Er þessi alveg eins og hin, bara hinsegin? (Ehemm, já...ég)

 


 

Sandra(sem er tognuð í öxlinni) þegar Þórunn rakst í öxlina hennar:

A! Ég er með öxl! (Ó, er það? ekki ég!)

 


 

Auður sturtuvörður ("Víma";) við Gústa Gangó:

Þú ert nú svolítið Rotinpúrulegur! (Og hvað þýðir það?)

 


 

Ég á það til að mismæla mig, sérstaklega þegar ég tala um þvottinn minn við mömmu:

Ég þoli ekki hvað allir bolirnir mínir minnka í svefni! (hehe, auðvitað átti þetta nú að vera í þvotti)

 

 

 

Magga þegar við vorum að labba í Bónusvideo á laugardaxkvöldi ;)

Mér er svo kalt á skallanum (fyrirgefðu hvaða skalla? Þú ert ljóshærð ;P)

 


 

 

Í Samfélagsfræði vorum við að ræða þá einstaklega skemmtilegu spurningu um "Hver skapaði Guð?" og þá sagði Linda:

Ég held að Guð hafi bara orðið til eins og heimurinn

Ég: Hvað, með geimþoku þá eða? (nýbúin að læra undir stjörnufræðiprófið;)

Linda: JÁ!


Unsa sagði einhverntímann við Eygló Ástu (sem var reyndar í gulum og brúnum bol):

Eygló! Þú ert eins og bananasplitt (eins gott að því er komið á framfæri ;))

 

Umræða í einum lífsleiknitíma:

Edda: Mig langar að fara útí geiminn

Unsa: Nei, þá kemuru til baka eins og ostur! (Uuu.. ha?)


 

Ég, Edda og Alli vorum að tala um menntaskóla þegar Alli (sem er víst ótrúlega "cool" drengur 0) sagði:

Allar stelpur sem fara í MR eru hreinar meyjar til tvítugs

En þá heyrðist í Söndru:,,Ekki ef að ÞÚ ferð þangað"

(Aldrei hef ég hlegið jafn mikið! :D)

 


 

Það fæðast MARGIR fyndir frasar í enskutímum, hérna eiga nokkrir eftir að safnast saman:

Kjartan og Gummi enskukennari í enskutíma um Jökul:

Kjartan:Leyfðu honum að anda, hann er örvhentur! :p Gummi:And do you think that he has to breath more cause he´s a lefthand? (Já, er það ekki annars?)

 


 

Gummi enskukennari spurði yfir bekkinn þegar við vorum að hlusta á eitt lag:

Og afhverju heitir lagið I walk the lines?

Og þá átti Sandra til með að svara:

Af því að hann er alltaf að segja það! (Já, þú meinar það!)

 


 

Gummi við Alex sem að var að "syngja":

Má ég bara benda þér á það að þú ert ekki hæna! (Takk fyrir upplýsingarnar!)


Kjartan: Ó sjitt

Gumm enskukennari: There´s no shit around here (Voða rólegur bara)


Gummi var búinn að vera að rausa einhvern helling þegar...

...Sandra segir: Ha?

Þá segir Gummi enskukennari alveg voðalega pirraður eitthvað: Æ Sandra, stundum hljómarðu eins og níræð kelling!