05.09.2007 21:09:14 / erlamaria
freshhh *
fullt af nýjum myndum !
og já, ég er enn á lífi 
sumarið búið, skólinn byrjaður. þetta sumar er búið að vera vægast sagt frábært! Og þá er held ég ÞETTA sem stendur upp úr:
* Próflokadjammið & kosninga-& eurovisionkvöldið 

* Afmælið hans Bjössa
* Washinton DC í lok maí, heimsókn til sendiherradótturinnar 
 * Afmælið hennar Söndru * Slóvenía !
* Írskir dagar, aka. þegar Magga týndi bíllyklunum !
* Vikan sem Magga var ein heima  * afmæli ásdísar hrundar * Verzlunarmannahelgin - útilega á Flúðum * & síðast en ekki síst: MALLORCA ! Þetta er samt alls ekki tæmandi listi.. Ég var að fíla vinnurnar mínar í sumar; Skjól & Snæland. Plús allt það sem við gerðum á virku kvöldunum.. ég á klárlega eftir að sakna þessa sumars ! Eeeen skólinn er ágætur, 5.A er núna orðin blanda af félags- og málabraut, hinir 12 bekkirnir í árganginum eru viðskipta- eða náttúrufræðibekkir... Svo er ég líka byrjuð í Söngskólanum, sem er held ég aðeins meiri vinna en ég gerði mér grein fyrir. Í vetur mun ég semsagt, ásamt því að mæta í söngtíma þrisvar í viku, klára tónfræðina, vera í tónheyrn & tónlistarsögu, gaman að því. eitthvað meira sem ég get bunað út úr mér? já.. ég er loxins komin á minn eigin bíl. Hætt að keyra opel station bílana hans pabba, honum tókst meira að segja að selja annan, hver hefði trúað því? núna keyri ég semsagt um götur bæjarins á Ford KA, ekki hlæja!  ég elska hann  segjum þetta gott, skoðiði myndirnar! *Erla María | 
| 
|
|
| 
|
| Your Snapfish Home Videos subscription has been expired. more info
|
| 
| 
| 
|
| |

| 
|
|
| 
|
| Your Snapfish Home Videos subscription has been expired. more info
|
| 
| 
| 
|
|