***
svo ég standi nú við orð mín og að hún Auður litla hætti að nöldra ætla ég aðeins að segja frá því sem á daga mína hefur drifið síðsustu vikur, ég hef hvort eð er ekkert merkilegra að gera, er bara í menningarfræðitíma 
Okei, Belgía:
Við fórum saman bekkurinn, og partur af 5.D, til Diest í Belgíu til að taka þátt í þessu líka skemmtilega "exchange project" við eldhress 90 og 91 módel
. Þessi ferð varð í rauninni miklu skemmtilegri en ég bjóst við að hún myndi verða. Belginn minn og Belginn hennar Ingibjargar voru sko kæró, þannig að við vorum nánast alltaf saman. Skoðuðum munkuklaustur frá miðöldum, hittum konu sem las í tærnar á okkur! Já, semsagt svona eins og lófalesari, nema þessi kerling las bara í tærnar. Og merkilega margt af því sem hún sagði var alveg eitthvað vit í.
ingibjörg og konan sem las í tærnar á okkur - Munkaklaustrið
Ég fékk líka að smakka slatta af belgískum mat; einhverja voða þjóðlega belgíska tómatsúpu með kjötbolllum, spes. Annars borða Belgar ótrúlega mikið af brösuðum mat og endalaust mikið af hvítu brauði. Þeir snýta sér líka hvar sem er, hvenær sem er! Meira að segja við matarborðið, sweet. Svo vissi ég varla hvert ég ætlaði þegar Belginn minn, hún Julie, setti ís inn í örbylgjuofninn.. 
Við íslensku krakkarnir gerðum líka margt saman. Fórum einn daginn til Brussel og fórum í rosa sight-seeing trip, skoðuðum Evrópuþingið og fleira skemmtilegt. Það kvöld fórum við í bæinn Leuven þar sem á dagskránni var pöbbarölt
Þar kenndu sumir Belgunum drykkjuleiki þar sem ég held að okkur hafi tekist að hneyksla Belgana fyrir lífstíð 
Atomium - ,,Belgíski Eiffel Turninn"
og ekki má gleyma Gunna sem sleit liðband fyrsta kvöldið og var alla ferðina í hjólastól... eða hoppandi um á hækjum
Við fórum líka til Antwerpen, þar fengum við aðeins að versla. Þannig að það kvöld mátti sjá 24 stelpur í eins jökkum úr H&M, eða svona næstum því
Þessi ferð var í alla staði mjög skemmtileg, belgíska fjölskyldan mín var yndisleg, þrátt fyrir að eiga hænur og hana sem galaði klukkan hálfsjö alla morgna
.
Julie, Matthias, Ingibjörg & ég
Allar myndirnar eru komnar inn á myspace-ið mitt: www.myspace.com/mariuerla
2o.október kom ég svo heim og það tók hana Margréti ekki langan tíma að draga mig út. Um kvöldið fórum við á Hverfis í afmæli, fáránlega gaman.
Á sunnudeginum mætti ég svo eldhress á fimm tíma Nobili-æfingu. Elska það að vera byrjuð að æfa jólalögin 
Á mánudaginn var það svo bara aftur í skólann og milljón próf og fyrirlestrar sem biðu manns.
Á þriðjudeginum voru svo tónleikar í Söngskólanum, frekar vel heppnaðir held ég bara.
Á miðvikudeginum fékk ég loksins að anda, eða það hélt ég, en þá kom í ljós að mín beið tuttugu mínútna fyrirlestur um Egyptaland sem ég átti að flytja í Alþjóðafræði daginn eftir, frábært! Þannig að ég eyddi miðvikudeginum í að finna upplýsingar um egypsk stjórnmál, efnahagslíf, heilbrigði o.fl.
Síðasta helgi var því langþráð afslöppun, fékk loksins að sofa, sem var frekar sweet, því ég vaknaði ekki við hanagal
. Var reyndar að vinna, sem ég hafði bara gott af, ekki búin að mæta í vinnuna síðan einhvern tíma fyrir Belgíu.
Held ég hafi frá litlu öðru að segja.. held að blogghæfileikum mínum sé að fara aftur 
Held ég fari þá bara að læra menningarfræði...
-Erla María