|
Dóminíska Lýðveldið*
Fyrir 1425 dögum
Belgía *
Fyrir 1581 dögum
|
26.12.2007 01:17:49 / erlamaria
GLEÐILEG JÓL ! jæææja blogCentral er búið að vera hluti af lífi mínu nógu lengi eða í næstum 5 ár, pælið í því?! heyri ég sorglegt eða..?  en kíkið á http://erlperl.blogspot.com og héðan í frá munu allar myndirnar mínar bara fara á myspace-ið mitt: www.myspace.com/mariuerla ég þakka fyrir góða tíma  - E R L A M A R Í A -
»
31.10.2007 10:16:48 / erlamaria
*** svo ég standi nú við orð mín og að hún Auður litla hætti að nöldra ætla ég aðeins að segja frá því sem á daga mína hefur drifið síðsustu vikur, ég hef hvort eð er ekkert merkilegra að gera, er bara í menningarfræðitíma  Okei, Belgía: Við fórum saman bekkurinn, og partur af 5.D, til Diest í Belgíu til að taka þátt í þessu líka skemmtilega "exchange project" við eldhress 90 og 91 módel . Þessi ferð varð í rauninni miklu skemmtilegri en ég bjóst við að hún myndi verða. Belginn minn og Belginn hennar Ingibjargar voru sko kæró, þannig að við vorum nánast alltaf saman. Skoðuðum munkuklaustur frá miðöldum, hittum konu sem las í tærnar á okkur! Já, semsagt svona eins og lófalesari, nema þessi kerling las bara í tærnar. Og merkilega margt af því sem hún sagði var alveg eitthvað vit í. ingibjörg og konan sem las í tærnar á okkur - Munkaklaustrið Ég fékk líka að smakka slatta af belgískum mat; einhverja voða þjóðlega belgíska tómatsúpu með kjötbolllum, spes. Annars borða Belgar ótrúlega mikið af brösuðum mat og endalaust mikið af hvítu brauði. Þeir snýta sér líka hvar sem er, hvenær sem er! Meira að segja við matarborðið, sweet. Svo vissi ég varla hvert ég ætlaði þegar Belginn minn, hún Julie, setti ís inn í örbylgjuofninn..  Við íslensku krakkarnir gerðum líka margt saman. Fórum einn daginn til Brussel og fórum í rosa sight-seeing trip, skoðuðum Evrópuþingið og fleira skemmtilegt. Það kvöld fórum við í bæinn Leuven þar sem á dagskránni var pöbbarölt Þar kenndu sumir Belgunum drykkjuleiki þar sem ég held að okkur hafi tekist að hneyksla Belgana fyrir lífstíð  Atomium - ,,Belgíski Eiffel Turninn" og ekki má gleyma Gunna sem sleit liðband fyrsta kvöldið og var alla ferðina í hjólastól... eða hoppandi um á hækjum Við fórum líka til Antwerpen, þar fengum við aðeins að versla. Þannig að það kvöld mátti sjá 24 stelpur í eins jökkum úr H&M, eða svona næstum því Þessi ferð var í alla staði mjög skemmtileg, belgíska fjölskyldan mín var yndisleg, þrátt fyrir að eiga hænur og hana sem galaði klukkan hálfsjö alla morgna . Julie, Matthias, Ingibjörg & ég Allar myndirnar eru komnar inn á myspace-ið mitt: www.myspace.com/mariuerla 2o.október kom ég svo heim og það tók hana Margréti ekki langan tíma að draga mig út. Um kvöldið fórum við á Hverfis í afmæli, fáránlega gaman. Á sunnudeginum mætti ég svo eldhress á fimm tíma Nobili-æfingu. Elska það að vera byrjuð að æfa jólalögin  Á mánudaginn var það svo bara aftur í skólann og milljón próf og fyrirlestrar sem biðu manns. Á þriðjudeginum voru svo tónleikar í Söngskólanum, frekar vel heppnaðir held ég bara. Á miðvikudeginum fékk ég loksins að anda, eða það hélt ég, en þá kom í ljós að mín beið tuttugu mínútna fyrirlestur um Egyptaland sem ég átti að flytja í Alþjóðafræði daginn eftir, frábært! Þannig að ég eyddi miðvikudeginum í að finna upplýsingar um egypsk stjórnmál, efnahagslíf, heilbrigði o.fl. Síðasta helgi var því langþráð afslöppun, fékk loksins að sofa, sem var frekar sweet, því ég vaknaði ekki við hanagal . Var reyndar að vinna, sem ég hafði bara gott af, ekki búin að mæta í vinnuna síðan einhvern tíma fyrir Belgíu. Held ég hafi frá litlu öðru að segja.. held að blogghæfileikum mínum sé að fara aftur  Held ég fari þá bara að læra menningarfræði... -Erla María
»
13.10.2007 01:50:24 / erlamaria
*** ég er stungin af til Belgíu í eina viku ! lofa awesome bloggi og myndum þegar ég kem heim, 2o.október Ykkar ástkæra !
»
05.09.2007 21:09:14 / erlamaria
fullt af nýjum myndum !
og já, ég er enn á lífi  sumarið búið, skólinn byrjaður. þetta sumar er búið að vera vægast sagt frábært! Og þá er held ég ÞETTA sem stendur upp úr: * Próflokadjammið & kosninga-& eurovisionkvöldið 

* Afmælið hans Bjössa
* Washinton DC í lok maí, heimsókn til sendiherradótturinnar   * Afmælið hennar Söndru * Slóvenía !
* Írskir dagar, aka. þegar Magga týndi bíllyklunum !
* Vikan sem Magga var ein heima  * afmæli ásdísar hrundar * Verzlunarmannahelgin - útilega á Flúðum * & síðast en ekki síst: MALLORCA ! Þetta er samt alls ekki tæmandi listi.. Ég var að fíla vinnurnar mínar í sumar; Skjól & Snæland. Plús allt það sem við gerðum á virku kvöldunum.. ég á klárlega eftir að sakna þessa sumars ! Eeeen skólinn er ágætur, 5.A er núna orðin blanda af félags- og málabraut, hinir 12 bekkirnir í árganginum eru viðskipta- eða náttúrufræðibekkir... Svo er ég líka byrjuð í Söngskólanum, sem er held ég aðeins meiri vinna en ég gerði mér grein fyrir. Í vetur mun ég semsagt, ásamt því að mæta í söngtíma þrisvar í viku, klára tónfræðina, vera í tónheyrn & tónlistarsögu, gaman að því. eitthvað meira sem ég get bunað út úr mér? já.. ég er loxins komin á minn eigin bíl. Hætt að keyra opel station bílana hans pabba, honum tókst meira að segja að selja annan, hver hefði trúað því? núna keyri ég semsagt um götur bæjarins á Ford KA, ekki hlæja!  ég elska hann  segjum þetta gott, skoðiði myndirnar! *Erla María | 
| 
|
|
| 
|
| Your Snapfish Home Videos subscription has been expired. more info
|
| 
| 
| 
|
| | 
| 
|
|
| 
|
| Your Snapfish Home Videos subscription has been expired. more info
|
| 
| 
| 
|
|
»
24.07.2007 18:45:25 / erlamaria
sumarið er tíminn, klárlega
ég hef allavega nóg annað að gera en að blogga þessa dagana, er
samt búin að setja inn fullt fullt af myndum, held að það sé það
mest spennandi hérna akkúrat þessa stundina.
þær segja eiginlega allt sem segja þarf um það sem ég er búin að
vera að gera af mér síðustu daga
írskir dagar - ég, magga, þór, bjössi & jón árni ákváðum að
skella okkur á laugardeginum. frekar gaman bara, nema náttúrulega
það að magga týndi bíllyklunum sem dró smá dilk á eftir sér. í
fyrsta lagi var þetta ekki bíllinn hennar heldur ömmu hennar og við
eyddum sunnudeginum í að redda okkur fari í bæinn og tala við
lögguna
í vikunni á eftir var magga ein heima þannig að við svona
hálfpartinn lögðum húsið undir okkur, fórum í pottinn og höfðum það
kósý. um helgina var svo "smá" partý heima hjá henni, við skemmtum
okkur flest bara veeel
Svo var líka fáránlega gaman að hitta Árna þetta kvöld, kallinn
kominn heim frá Þýskalandi, eftir 11 mánaða skiptinemaprógram
Svo hitti ég líka elsku eistagellurnar mínar í þessari viku.
Hittumst heima hjá Brynhildi og borðuðum súkkulaðiköku a la
brynhildur og spjölluðum. Þegar Eygló var svo að skutla mér heim
hringdi Sandra og við hittum hana, Þór og Möggu, en þau voru í
fótbolta  Minnti mann soldið á gömlu dagana bara, frekar gaman
um síðustu helgi hitti ég ausu & ingibjörgu eftir vinnu á
föstudeginum og við fórum í afmæli til hildar  takk fyrir mig
sæta. enduðum svo í bænum, hitti möggu, söndru, eddu, rebekku &
bjössa. dönsuðum af okkur rassgatið á sólon, vægast sagt.
á laugardeginum var ég svo að vinna en um kvöldið hittumst við
nokkur heima hjá mér og grilluðum, eða bjössi grillaði, saman. Svo
kíktu nokkrir í heimsókn og úr varð þetta líka fína djamm. kannski
fyrir utan það þegar óli braut eldavélina  haha..
mæli með að þið skoðið myndirnar frá þessu öllu saman, við erum öll
orðin heví sumarleg og sæt
farin að gera eitthvað sniðugt
-erla maría
»
26.06.2007 18:42:49 / erlamaria
*
Fyrir akkúrat mánuði var ég á leiðinni til Bandaríkjanna
með Ingibjörgu, við vorum reyndar næstum búnar að missa af fluginu
af því að astma-sjúklingnum vantaði sterana sína 
Þegar við loksins komumst í gegnum flugvöllinn, eftir að hafa
látið taka myndir af okkur og svarað hvort við værum þarna í
"business or pleasure" fengum við loksins að faðma Ausuna okkar
.
Washington DC er
frekar flott borg, með flottum byggingum, en djöfull var ógeðslega
mikill raki þarna. Sem þýddi aðeins eitt, við vorum sveittar allan
daginn, mmm 
En við gerðum eitthvað annað en að vera sveittar. Þegar Ausa var í
skólanum lágum við í sundlauginni og nældum okkur í smá tan, nema
Ingibjörg sem fékk brjálað ofnæmi og varð öll rauðflekkótt og
bólgin, greyið. Svo versluðum við, létum elda ofan í okkur, fórum í
dýraarðinn , lékum túrista í einn dag þar sem við
sáum Memorial Day skrúðgöngu og skoðuðum Hvíta Húsið. Við
fórum líka í skólann hennar Ausu. Hressu krakkar. Svo var okkur
boðið í afmæli á laugardagskvöldinu. Það er held ég eitt af
skemmtilegustu partýum sem ég hef farið í Held að myndirnar munu
bara tala sínu máli .
Ég kom svo heim mándaginn 4.júní, & þar til að ég fór aftur út
þann 1o. var ég eiginlega bara stanslaust að vinna. Á laugardeginum
hélt Sandra svo upp á afmælið sitt, takk fyrir mig sæta 
Þaðan fór ég svo bara beint upp í kirkju, þar sem við tókum rútu
til Keflavíkur og flugum þaðan til Trieste á Ítalíu og keyrðum svo
til Slóveníu, klárlega besta kórferð í heimi.
Nokkur lykilorð úr
ferðinni:
-
hamstur&humar
-
Ásdís:,,Ég er svööööng"
-
Stracciatelli
-
Stefano
-
baðsloppar (sem kosta margar margar
evrur!)
-
hvar er ingvar?
-
sigling
-
sardínur og smokkfiskur
-
búningurinn sem elín edda ætlaði að
hanna
-
sólarolían hennar evu sólar
-
djamm?
-
mercator
-
ljubliana
-
hellidemba

ég mæli með myndunum, þær koma bráðum, ég lofa

Svo kom ég heim á 17.júní. Síðan þá er ég búin að vinna á
hverjum degi nema átti einn frídag einvherntíma í síðustu viku.
Gamla fólkið á Skjóli eru yndi og ég kann bara vel við mig
þarna. Og ef ég er ekki á Skjóli þá er ég í Snælandi. Svona
verður þetta þangað til 6.ágúst, ég er farin að hlakka þvílíkt
til, tvær vikur í stanslausri sól með uppáhaldsstelpunum mínum

Eeen yfir í eitthvað allt annað. Þið munið kannski
eftir blogginu mínu hérna um daginn þar sem ég var að segja frá
því að hann faðir minn tekur ekki annað í mál en að eiga
grænan bíl. Þegar ég kom heim frá Bandaríkjunum hélt ég að
hann væri búinn að losa okkur við grænu opel-station drusluna fyrir
fullt og allt, þar sem hann sagðist vera búinn að kaupa nýjan bíl.
Jújú, hann var alveg búinn að kaupa nýjan bíl, meira að segja annan
opel astra station bíl, en hann er samte ekki ennþá búinn
að losa sig við grænu drusluna, ég held að innst inni langi
hann bara ekkert til þess. En ég kvarta ekki svo lengi sem það
eru þrír bílar á heimilinu. En málið með nýja, eða "nýja" opelinn
er það, að hann er eiginlega algjör drusla líka. Þegar hann
keypti hann var hljóðkúturinn sprunginn. En hann var lagaður sem
betur fer. Þá kom í ljós að bensíntankurinn er ónýtur, hann
lekur! Þannig nú keyri ég um götur bæjarins með pínulítið bensín á
bílnum, krossleggjandifingur um að verða ekki bensínlaus. En
það gerðist einmitt á sunnudaginn. Ég og Aron vorum að
fara að sækja Þór, þegar hann hringir og segist vera kominn upp í
Laugarásbíó, vorum semsagt á leiðinni í bíó. Og þar sem klukkan var
alveg korter í átta ákvað ég að taka bensín, hélt samt alveg að
þetta myndi sleppa, ég og aron vildum bara halda kúlinu þið
skiljið, ekkert vera að mæta of snemma í bíó. En svo gerist
það svona 2-300 metrum áður en við komum á bensínstöðina
að ég verð bensínlaus, inn í miðju hringtorgi. Þannig að Aron fékk
það skemmtilega hlutverk að fara út að ýta. Klárlega það
kjánalegasta sem ég hef lent í lengi 
ég elska pabba minn, og bíldruslurnar hans líka
 
Fáránlega langt blogg orðið staðreynd, enda meira en
mánuður frá síðasta bloggi. Ætla að henda inn öllum þessum myndum,
það gæti tekið tímana tvo.
-erlperl*
»
23.05.2007 13:58:27 / erlamaria
jæja, einkunnir komnar í hús. Og ég er sko
með gleðifréttir krakkar, ég fékk hvorki meira né minna en
8 í leikfimi! Kraftaverkin
gerast enn Vona að þið samgleðjist með mér, því
Verzló-leikfimin er ekkert djók, trúið mér 
Ég fékk samt lægst í leikfimi, litla nördið ég, enda fékk ég söguverðlaun, til að
kóróna þetta allt saman.
Ég er allavegana komin með verzlunarpróf, hversu töff?
  
Þannig ég fer sátt út í sumarið og nú eru
þrír mánuðir mínus þrír dagar þangað til ég þarf að hugsa um
skólann aftur, sem er sweet.
Síðustu dagar hafa verið ekkert nema skemmtilegheitin og
kæruleysi.. Sund, bíó, vinna, djamm,
hitta fólk, sex&thecity og desperatehousewifes, og já,
leita að almennilegri sumarvinnu. Sem að ég fékk í dag, gaman að
segja frá því. Á milli þess sem ég verð í útlöndum ætla ég að hugsa
um gamla fólkið á Skjóli. Held að það
sé mjög gefandi og þroskandi starf sem mun bara gera mér
gott.
aðeins meira um síðustu daga.. Bjössi elskan átti afmæli 15.maí og á föstudaginn
hélt hann upp á afmælið, ansi vel heppnað það, við skemmtum okkur
vægast sagt vel takk fyrir mig Magga smellti nokkrum myndum en ég bíð bara
þolinmóð, hún Margrét er nefninlega komin með einkyrningasótt
þannig að greyið hefur litla sem enga orku þessa dagana, láttu þér
batna einhyrningurinn minn

Og hei! Eftir litla þrjá daga mun ég fá að knúsa þessa
heltönuðu prom-queen :
& hver veit
nema að ég fái að knúsa þennan ofurhressa vin hennar líka?
Það er svo stutt síðan það voru alveg 1oo&eitthvað dagar í
þessa Washington-ferð, ég man ekki
eftir að hafa hlakkað svona mikið til leeeengi 
svo eru líka bara litlir 18
dagar í Slóveníu ekki slæmt.
Jæja, desperate housewifes bíða mín, ég get ekki hætt
.
-kíkiði svo á mig í
snæland í kvöld og fáið ykkur ís
-
-Erla María *
»
11.05.2007 20:39:38 / erlamaria
 
heiðurinn af þessum vel
völdnu orðum á enginn annar en faðir minn. Honum finnst
nefninlega ekkert meira töff í allri veröldinni en að eiga
grænan bíl. Við erum núna að reyna að losa okkur við grænu
Opel-drusluna og pabbi vill bara kaupa annan grænan
bíl, og auðvitað er ég ekkert sátt með það Það þarf vart að
taka fram að ég vil ekkert nema blátt, sérstaklega þegar ég er
farin að geta keyrt þetta sjálf 
já krakkar mínir, ég er
loksins komin með bílpróf. Góðir hlutir gerast hægt

ég lofaði besta bloggi
í heimi, ætla að reyna að standa við það.
kemst eiginlega ekki hjá því
að tala aðeins um peysufatadaginn, sem var 26.apríl. Dagurinn
sem ég eyddi svona 117.ooo hádegishléum og meira til í að
skipuleggja, ásamt elskulega ráðinu mínu. Þessi dagur
tókst betur enn ég hefði nokkurn tíma þoraðað vona.
Ballið um kvöldið var líka eitt skemmtilegasta (og sveittasta)
ball sem ég hef farið á Ætla að henda inn
myndunum eftir smá, tékkiði þær endilega.

myndarlegi bekkur ... 

-það var svona gaman -
Í dag tók ég síðasta og
sjöunda prófið. Sjö próf á ellefu dögum. Ég hef sjaldan
verið svona fegin að komast í frí, það er svo margt
skemmtilegt framundan; lokaballið, afmælið hans
bjössa, BANDARÍKIN, SLÓVENÍA & svo MALLORCA auðvitað.
Svo má ekki gleyma eurovision á morgun 
Aumingja Eiríkur, hann átti ekki séns í allan þennan mannfjölda og
klíkuskap í Austur-Evrópu. Horfði á þetta með öðru auganu í
gær (var með hitt á heimsins bestu þjóðhagfræðiglósum). Hrafnkell
horfði á þetta með mér og hann, af öllum, var alveg að lifa sig þó
nokkuð inn í þetta. Svo þegar úrslitin voru ljós stendur hann
upp og hálföskrar: Það ætti bara að bomba þetta lið þarna í
Austur-Evrópu! Hvern hefði grunað að þrítugur bróðir minn
myndi taka Eurovision svona inn á sig ? Ekki mig
allavega...
Þessi prófatími var samt
ekkert alslæmur, dagarnir þar sem það var ekki próf daginn
eftir fóru margir í eitthvað skemmtilegt. Sund, bíó,
óendanlegir margir rúntar, smááá vinna og fleira sniðugt.
Síðasta helgi var líka smá tilbreyting frá stjórnmálafræði-,
sögu-, og íslenskubækum. Edda, Magga & Aron ákváðu að nýta sér
bílprófið mitt með þá afsökun að ég skuldaði þeim milljón skutl!
Sem er alveg rétt Þannig að ég var driver-inn þeirra það
kvöldið. Fórum í eitthvað Samfylkingarpartý á Barnum, þar nýttu
sumir sér það einum of að það var frítt á barnum (eftir að hafa
stútað kampavínsflösku á korteri). Svo kíktum við til Kollu þar sem
Magga og Edda ákváðu að ganga í það heilaga og ég og Aron fórum í
"hokkí" með lime-i. Ekki leiðinlegt partý það 
En núna tekur bara við
stanslaust kæruleysi þangað til 26.maí, hlakka til hlakka til

farin að gera eitthvað allt
annað en að læra!
-erlperl
»
01.05.2007 21:35:53 / erlamaria
* Ég lofa besta bloggi í heimi 11.maí
*
-þangað til er ég í brjáluðu nostalgíukasti, ég þrái
sumar-
Nokkrar velvaldar frá síðasta sumri:
 
  
  
 
  
 
 
Gangi ykkur
vel í prófunu
m elskur !
»
09.04.2007 21:40:33 / erlamaria
Þá er ég búin að stúta páskaeggi nr. 5 frá
NóaSiríus! Vissi ekki að ég gæti þetta ennþá. Þó að ég sé
kannski ekki lítil ennþá þá er ég alveg jafn mikill nammigrís

Páskafríið er búið að vera sweet. Er reyndar búin að
vinna sjúklega mikið, 9 vaktir á síðustu 10 dögum, ekki slæmt að fá
útborgað næstu mánaðarmót! Þá verð ég líka von bráðar á leiðinni
til U S & A Ég held ég springi bráðum af tilhlökkun, það
er svo langt síðan ég hef séð þessa hérna:

En já páskafríið, í því er ég meðal annars búin
að:
*
vinna eins og mófó (eins& ég var að segja frá, gaman
gaman), átti eina furðulegustu vakt fyrr&síðar held ég
bara... Með Írisi og Rebekku, fulluþunnu! 
* Fara í sund í góða veðrinu, alveg tvisvar!
* Djamma smá, takk fyrir skeeeemmtilegt kvöld Edda, Magga &
Rebekka
* Keyra smá nú styttist og styttist í
þetta
* Horfa á BORAT, aftur 
* Rúnta með Möggu í 117 klst. og deila ýmsum leyndó-um

* Fór í sveitina á laugardaginn eftir vinnu,
hitti Yrsu Guðrúnu & fjölsk. þar
* Hitta Emilíu, hún er hressari sem aldrei fyr 
*Læra? neeei, nema að tvær bls. í sögubókinni teljist með
?
Eftir páskafríið tekur samt ekkert spes tími við,
bara 20 dagar í vorpróf eða svo þannig að ég hef nóg að gera
í að lesa sirka 2000 bls. jibbí kóla
Ætla núna að fara að hitta stelpurnar, ætlum að
horfa á Dumb&Dumber  Sem er búið að vera á
planinu síðan í jólafríinu. Held að ég hafi síðast horft á
þessa mynd heima hjá Erlu R. í Drekavoginum í
eldgamladaga.

við
sjáumst !
-Erla
María, www.myspace.com/mariuerla-
»
30.03.2007 19:54:22 / erlamaria
ég held ég segi bara eins og erla
rún - Ég er búin að finna hana, uppteknustu
viku í veröldinni!
En hún er líka búin og ég er komin í páskafrí, hversu
sweet?
Páskafrí sem ég ætla að nýta í ekki
neitt. 11 daga afslöppun með smá vinnu

En já
þessi upptekna vika.. Í þessari viku fór ég í þrjú próf og skilaði
þremur ritgerðum, öðru eins brjálæði hef ég ekki kynnst á minni
skólagöngu !
Inn á milli fann ég samt smá tíma til að gera eitthvað skemmtilegt.
Á miðvikdaginn fór ég í sund með stelpunum, ég var búin að gleyma
hvað það er kósý að fara í sund. Svo hittum við líka slatta af
skemmtilegu fólki, þar á meðal Aron Leví sem dró okkur í
rennirbrautina með þeim afleiðingum að ég er með tvær svartar kúlur
á bakinu... nice
Í vikunni var líka kosningavika í skólanum,
þannig að ég er búin að lifa á útrunnu kosninganammi alla
vikuna. Mér lýst bara nokkuð vel á frambjóðendurna og hef á
tilfinningu að næsta skólaár verði skemmtilegt

Ég öfunda Ásdísi smá, sem er núna í
WashingtonDC hjá Ausu! Það er samt ekkert svooo langt þangað
til ég fer! Þannig hvað er ég að kvarta?

Ætla að halda áfram að horfa á heroes, elska
að geta bara horft á milljón (tjah.. eða 16) þætti án þess að
stoppa 
gleðilegt páskafrí elskur

»
13.03.2007 00:22:43 / erlamaria
*
afhverju fer ég alltaf svona seint að sofa? það er
óþolandi. ég kenni auði um, búsett í annarri heimsálfu, bara hægt
að tala við þig á nóttunni þarna. já það er þér að kenna að ég svaf
allt hádegishléið.
annars ætlaði ég ekkert að tala um
svefnvenjur mínar, alls ekki bara. helgin var skemmtileg,
tölum um hana.
byrjum á fimmtudeginum bara. þá stóð til að
fara í bóklega (bílprófið). átti að mæta klukkan fjögur og
edda ætlaði að vera svo sæt og skutla mér, sem hún auðvitað
var eins og alltaf . Svo kom hún korter í en þá fattaði
ég að ég þurfti að ná í ökunámsbókina mína alla leið upp í
grafarvog, frábært. en við redduðum þessu á korteri, smá
sikksakk á akreinum og gefa í í beygjum og á gulum ljósum. ég
rústaði líka prófinu, 1 villa í a og 1 í b þá fer
þetta bara að styttast & styttast !
á föstudaginn átti rebekka afmæli. til
hamingju elskan ! auðvitað héldum við upp á þetta
& fórum út að borða á ítalíu; hún, ég, edda, magga og
bjössi. eftir mjööög góðan mat fórum við heim til
hennar. ég þurfti reyndar aðeins að skreppa í vinnuna og
loka, sem var bara hressandi. krakkarnir voru hins vegar
ennþá hressari þegar ég kom aftur til rebekku. ég og sandra
skutluðum þeim svo niðrí bæ, en þessi bæjarferð var svo aftur
á móti svolítið spes. held að rebekka ætti að forðast efri
hæðina á Prikinu í bráð 



,,I can be your hero baby!" 
á laugardaginn fór ég í sveitina (seljaland)
og hitti fullt af yndislegu frændfólki. tók með mér
námsbækurnar en lærði ekki mikið, ég á nóg af litlum frænkum
og frændum sem sáu ofan fyrir mér 
á sunnudaginn kom ég í bæinn um þrjú, hitti
jóa sem skutlaði mér svo í vinnuna. ekki merkilegri dagur en
það.
svona til tilbreytingar ætla ég að reyna að
sofna fyrir tvö í kvöld/nótt. góð byrjun á því væri t.d. að
slökkva á tölvunni...
góða nótt
erlperl*
»
05.03.2007 01:09:56 / erlamaria
sunnudagsblogg..
sem
þýðir væntanlega blogg um helgina sem var að klárast.
föstudagurinn fór í þreyttan skóladag vegna sögulesturs um
nóttina, og þar af leiðandi sjúklega erfitt sögupróf. Um kvöldið
horfði ég á Gettu Betur, ekki slæmt að vinna MA-ingana svona. Hitti
svo Möggu og við tókum bara klassískan rúnt á þetta. Skoðuðum
myndir mánaðarins og Séð&Heyrt frægu frægu...
fór svo bara frekar snemma heim að sofa
laugardagurinn... fór að vinna kl. fimm, óeðlilega mikið
að gera eitthvað. En eftir vinnu dreif ég mig heim og skipti um
föt. Jói kom svo og sótti mig, Möggu & Söndru. Við ætluðum svo
að fara í bekkjarpartý hjá bekknum þeirra, en svo var það víst
eitthvað að leysast upp svo við enduðum einhverra hluta vegna í
afmælispartýi hjá Halla V. Þar var sjúklega gaman, hitti slatta af
fólki, fyrrverandi Verzlinga helst, ekkert nema
skemmtilegheitin.
við enduðum svo á því að kíkja í bæinn, held að ég hafi sjaldan
dansað svona mikið 
howImageAtIndex(311)"> howImageAtIndex(304)"> howImageAtIndex(301)"> howImageAtIndex(296)"> howImageAtIndex(295)">
dagurinn í dag var rólegur. Gerði heiðarlega tilraun til
að byrja á að lesa "Almenn ökuréttindi" Það gekk misvel. Bóklega á
fimmtudaginn!
Horfði líka á krúttlegustu mynd í heimi, Les choristes. Fjallar um
franska litla stráka í vandræðagemsaskóla, sem gerast kórdrengir
með hjálp nýja umsjónakennarans þeirra. Falleg tónlist í þessari
mynd.
 
núna er ég að blogga, horfa á heroes og
tala við ausu. Svolítið erfitt að gera allt í einu.
Sérstaklega þar sem ég ætti að vera sofandi. Held ég geri það
síðast nefnda.
góða
nótt
»
02.03.2007 19:56:16 / erlamaria
*
marssss..
mars
er yfirleitt frekar leiðinlegur mánuður, ekkert að gerast, langt í
sumarið & endalaus skóli. En maður á ekki að hugsa svona, þess
vegna ætla ég að vera extra jákvæð í mars 
er
búin að vera á leiðinni að blogga alla vikuna, meðal annars því
síðasta helgi var svo skemmtileg! Á föstudaginn hitti ég
jafningjafræðsluna, þau komu í smá heimsókn. Það vantaði reyndar
nokkra, en ég, Edda, Ragna, Gimmi & Ívar skemmtum okkur við að
spila á píanó og syngja, booorða nammi og ís með einhverri svaka
svaka snickerssósu a la Gimmi. Týpískt jafningjafræðslu"partý" ha ?

Það kaldhæðnislega var kannski að í húsinu ská á móti var eitthvað
svakalegt 1o.bekkjarpartý sem löggan krassaði kl.hálfellefu og hátt
í 1oo fullir krakkar og slatti af löggbílum fyrir utan húsið mitt

 
á
laugardaginn fór ég í vinnuna, vann reyndar bara í þrjá tíma, því
svo fór ég heim og gerði mig reddí fyrir árshátíðina. Ég, Edda,
Magga og Rebekka fórum svo til Jóhönnu, yfirgellunnar okkar, í
hálfgert fyrirpartý, klukkan fimm takk fyrir. Svo var haldið á
Nasa, með limmu haha..! hummerlimmunni meira að segja. Á Nasa var
svo þessi kvikmyndahátíð, allar videoleigur höfuðborgasvæðisins
samankomnar. Og auðvitað var Snæland laugavegi kosin besta leigan
fengum bikar og allt 
 
 
á
sunnudaginn fór ég svo í vinnuna og ég held að ég hafi aldrei
hlegið jafn mikið á einni vakt, Sævar á því eiginlega mestu að
þakka 
Þessi skólavika er búin að vera freeekar busy, próf og
fyrirlestrar til skiptis. Þannig að ég er bara fegin að það sé
komin helgi og ætla bara að taka því rólega. Ég og Magga ætlum samt
kannski að gera eitthvað skemmtilegt á morgun.
Núna
ætla ég að tékka á Gettu Betur, ímynda mér að ég sé stödd á
Akureyri 
svo
styttist alltaf í Bandaríkjaferðina, og Ausa var að segja mér að
25.maí verður Damien Rice með tónleika í Washington og við ætlum að
skella okkur. Hlakka svo til 
faaarin
-tékkiði nýju
myndirnar
»
20.02.2007 00:41:03 / erlamaria
ég er
aftur orðin lasin, það er ógeðslegt. Hef sjaldan upplifað jafn
ógeðlslegan skóladag og í dag, sjúgandi upp í nefið og hnerrandi
eins og ég veit ekki hvað.
Held að ég
megi alveg kenna helginni um það að kvefið og hálsbólgan sé komin
aftur. Um helgina vorum við, kórinn, nefninlega að taka upp
geisladisk, og það ekkert stuttan. Og á þessum árstíma eru
náttúrulega allir veikir, önnur hver stelpa sem gat varla sungið
vegna hósta. En þetta var bara hressandi. Ég hef allavega aldrei
drukkið jafn mikið te á svona stuttum tíma. Te er ekkert svo gott
þegar maður drekkur svona mikið af því...
En nóg um
te, ég gerði víst eitthvað annað um helgina en að drekka te. Glápti
á video, vann smá og skrifaði eina ritgerð. Á laugardagskvöldið
kíkti ég til Bjössa með Jóa en þar voru Edda & Rebekka að gera
sig reddí fyrir bæinn. Atvikið sem klárlega bjargaði kvöldinu var
þegar Edda flaug á rassinn á parketinu hans Bjössa! Langt síðan ég
hef hlegið jafn mikið 
Mamma fór
til Englands í morgun, ég sit uppi með tvo kalla hérna á heimilinu
fram á föstudag, það verður fróðlegt að sjá hvernig það fer.
Annars er ég farin að hlakka smá til helgarinnar.
Jafningjafræðsluhittingúr á föstudaginn og árshátíð hjá Snælandi á
laugardaginn, limmósía og allur pakkinn! hahaha.. hversu töff er
starfsfólkið þar?
farin að
sofa!
»
Síður: 1 2 3 ... 22
|
|